Skilmálar

Viðskiptaskilmálar okkar eru reglulega uppfærðir og gilda um öll kaup hjá Stöfnum.

Stafnar.is er í eigu og er rekið af

Stafnar Innflutningur ehf.
Völuási 18
260 Reykjanesbæ
Tölvupóstur: stafnar@stafnar.is 

Afhendingartími

Áætlaður afhendingartími er staðfestur um það bil viku eftir staðfestingu pöntunar. Allar vörur frá Stöfnum eru framleiddar sérstaklega fyrir þig eftir þeim málum sem þú hefur gefið upp. Því er afhendingartíminn alltaf einungis áætlun, en að öllu jafnan má reikna með 7-10 vikum í afhendingartíma.

Pöntun sem er afhent eigi síðar en fjórum vikum eftir staðfestan afhendingartíma er álitin afhent á réttum tíma, og kaupandi getur því ekki borið upp kvörtun þess vegna.

Að auki gefur Stafnar eftirfarandi fyrirvara: Tafir sem stafa af ófyrirsjáanlegum orsökum, stríði, þvingunum, truflunum á flutningi, vélarbilun, efnis, meðhöndlunar og framleiðslu galla og töfum vegna undirverktaka geta ekki gefið kaupanda rétt til kvörtunar.

Í öllum tilvikum, getur kaupandi að hámarki krafist skaðabóta samsvarandi virði vörunnar sem keypt var.

Staðfesting á pöntun og greiðsla

Staðfesting á pöntun er gerð með greiðslu og staðfestingu teikninga.

Mælingar, staðfestar teikningar og breytingar

Fyrir staðfestingu pantanar þarf kaupandi að senda nákvæmar mælingar, nægjanlega nákvæmar til að hægt sé að smíða vörurnar. Til að fyrirbyggja misskilning endurgera Stafnar teikningarnar og senda til staðfestingar af kaupanda innan 2-3 daga. Eftir að teikningarnar hafa verið staðfestar byrja Stafnar framleiðslu á vörum er því ekki hægt að breyta eða afpanta vöru sem er pöntuð.

Skemmdir í flutningi

Áður en kaupandi kvittar fyrir móttöku vörunnar við afhendingu skal hann yfirfara hana til að gá að skemmdum. Kaupandi skal því athuga hvort umbúðir eru heilar, eða ef það eru aðrir hlutir sem benda til skemmda. Að lokum verður að ganga úr skugga um að fjöldi vara sé réttur.

Ef skemmdir finnast er vara móttekin með ákveðnum fyrirvörum sem minnast skal á á afhendingarstaðfestingu. Kaupandi skal hafa samband við Stafna innan innan 24 klukkustunda.

Myndir af skemmdum skal taka áður en umbúðir eru fjarlægðar, annars ógildist kröfurétturinn. 

Ef móttökustaðfesting er undirritað af kaupanda án athugasemda, er ekki hægt síðar að krefjast bóta vegna skemmda eða vegna þess að hluta vantaði.

Uppsetning

Uppsetningu á vörum frá Stöfnum má gera á marga vegu og þarf kaupandi að aðlaga það að aðstæðum hverju sinni eða fá fagmenn til verksins. Vörur frá Stöfnum geta verið þungar, kaupandi skal tryggja að undirbygging (t.d. innréttingar) séu nægjanlega sterkar til að bera þungann. Einnig skal kaupandi tryggja að nægjanlega margir einstaklingar eða rétt tól séu til staðar til að bera vörurnar. Stafnar taka ekki ábyrgð á slysum við uppsetningu.

Mistök eða gallar í vöru

Eftir að pöntunin hefur verið afhent á heimilisfangið þitt ber að skoðaði hana vandlega til að athuga hvort finnast mistök og/eða gallar. Berðu pöntunina saman við staðfestar teikningar og athugaðu hvort allt er eins og það á að vera. Ef svo ólíklega vill til að þú finnur mistök eða galla í pöntuninni skaltu bera upp kvörtun innan 8 daga frá afhendingu. Myndir af mistökum/göllum skal taka fyrir uppsetningu, annars ógildist ábyrgðin. Ath, best er að bíða með uppsetningu þangað til þú hefur fengið svar við kvörtun þinni.

Athugið að margar af vörum Stafna eru gerðar úr Quartz steini sem er náttúrulegt efni og geta því smávægilegar breytingar í munstri og litablæ átt sér stað. Þetta er talið eðlilegt.  

Ábyrgð

Kaupandi getur krafist úrræða samkvæmt gildandi íslenskum lögum, ef keyptur hlutur hefur óvænt galla eða hann stendur ekki undir kröfum. Sem kaupanda hjá Stöfnum hefur þú því að lágmarki 24 mánaða ábyrgð.

Tilkynna skal alla galla sem kunna að verða innan eðlilegs ábyrgðartíma eins fljótt og auðið er. Að tilkynningin sé réttlætanleg er auðvitað krafa. Gallar sem verða sökum óviðeigandi notkunar eða óviðeigandi uppsetningu á vörunni eða öðrum skaðlegum orsökum eru ekki réttlætanlegir. Allar kvartanir verða að vera gerðar í gegnum þjónustulið okkar og eigi síðar en tveimur mánuðum eftir að villan hefur fundist. Mundu að setja myndagögn um gallann í viðhengi.

Stafnar hafa í öllum tilvikum rétt á, innan hæfilegs tíma, að bæta tjón, annað hvort með því að skipta vörunni út eða taka hana til baka. Stafnar geta því eftir rökstudda kvörtun gert við skaðann, skipt út vörunni fyrir nýja vöru eða endurgreitt vöruna. Ef Stafnar útvegar nýja vöru, nær ábyrgðin ekki yfir kostnað við uppsetningu.

Bætur og ábyrgð

Kaupandi getur alltaf krafist skaðabóta samkvæmt gildandi íslenskum lögum. Þó getur kaupandi að hámarki krafist skaðabóta sem nemur verið keyptu vörunnar.

Stafnar innflutningur ber ekki ábyrgð á skaða af völdum seldra vara:

  • á fólki, fasteignum eða munum meðan varan er í vörslu kaupanda.
  • Á vörum framleiddum af kaupanda eða vörum sem innihalda þær eða á skemmdum á fasteignum eða munum, sem þessar vörur framleiddar af kaupanda kunna að valda.
  • Stafnar.is er á engan hátt ábyrgt fyrir glötuðum hagnaði eða öðru fjárhagslegu tapi.

Lög og varnarþing

Skilmálar þessir og samningar Stafna við viðskiptavini falla undir íslensk lög.
Allur ágreiningur og/eða kröfur á grundvelli skilmála þessara eða samninga við viðskiptavini skal leysa úr fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
 

Annað.

Þar sem skilmálum þessum sleppir gilda lög um lausafjárkaup, nr. 50/2000, eða eftir atvikum lög um þjónustukaup, nr. 42/2000.