Framleiðslukostnaður, flutningsgjöld og ýmsir tollar og skattar geta ansi fljótlega hrannast upp og valdið því að söluverð til viðskiptavina verði mun hærra en góðu hófi gegnir. Þess vegna höfum við lagt gríðarlega mikla áherslu á að halda verðinu eins lágu og við mögulega getum og viljum við meina að okkur hafi tekist ansi vel til. En hvernig höfum við náð þessum árangri?
Til að byrja með höfum við náð afar góðum og samkeppnishæfum samningum við birgja okkar erlendis, en góðir samningar geta verið gulls ígildi. Gjarnan afar bókstaflega. Þessar vönduðu borðplötur okkar eru framleiddar af steinsmiðju sem hefur yfir þriggja áratuga reynslu, svo það er ljóst að á bakvið framleiðsluna standa engir aukvisar. Einnig er notast við vandaðar ítalskar vélar og úr þeim koma vörurnar alveg tilbúnar, svo það er ansi mikið magn af vinnu sem sparast við þetta reynslumikla ferli. Þetta hefur svo skilað sér til okkar í lægra verði en gengur og gerist.
Í öðru lagi hefur okkur tekist að eiga öll samskipti og gera alla samninga milliliðalaust beint við framleiðendur. Þannig erum við laus við ýmis óþarfa skref, sem bæði gætu aukið flækjustig þegar kemur að pöntunum og afhendingu, og sparað okkur óþarfa álagningu þessa þriðju aðila.
Eins og áður kom fram, koma quartz borðplöturnar frá Primastone fullmótaðar og tilbúnar úr framleiðsluvélunum svo þær krefjast alla jafna engrar frekari vinnu eftir að við höfum fengið þær afhentar. Þannig höfum við losnað við óþarfa yfirbyggingu og tækjabúnað, með tilheyrandi viðhalds- og efniskostnaði, og nýtum þann sparnað til að halda niðri verðinu á vörunni.
Okkur hefur einnig tekist að útrýma þörfinni á einhvers konar lagerhúsnæði. Allar pantanir sem okkur berast eru áframsendar til okkar birgja og plöturnar sérstaklega framleiddar fyrir viðskiptavini okkar, eftir öllum þeim málum og séróskum sem þeir kunna að hafa. Þetta sparar okkur leiðindin sem fylgja því að sitja uppi með óseldar borðplötur, sem gera ekkert nema að taka pláss og safna ryki á einhverjum fokdýrum lager. Að sama skapi neyðumst við aldrei til þess að afskrifa plötur sem dottnar eru úr tísku.
Talandi um húsnæði, þá höfum við einnig gripið til þeirrar sparnaðarlausnar að halda ekki úti neinum sérstökum sýningarsal. Viljir þú fá sýnishorn af vönduðu og endingargóðu borðplötunum okkar, hefur þú einfaldlega samband og við sendum þér þau heim að dyrum. Þessi sparnaður hjálpar okkur enn frekar við að skafa af verðinu.
Við hjá Stöfnum höfum unun af fallegri innanhússhönnun og mikla ástríðu fyrir því sem við gerum. Eitt af okkar helstu markmiðum er að bæta aðgengi fólks að fallegum innanhússmunum og höfum við því gert allar þessar ráðstafanir til þess að reyna að halda verðinu á þessum fallegu borðplötum í lágmarki.
Allir eiga skilið að eignast draumaeldhúsið sitt, og við viljum leggja okkar af mörkum svo að sem flestir sjái sér fært um að láta þann draum rætast.
]]>Því er alls ekki margt sem þarf að gæta varðandi meðferð quartz borðplatanna. Þær þurfa ekkert sérstakt reglubundið viðhald og því eru allar olíur og áburðir óþarfir! Það eina sem þarf að gera er að þrífa plötuna reglulega með blautri tusku eða rökum klút.
Þökk sé hörku kvarsefnisins draga plöturnar lítinn sem engan vökva í sig og því er afar ólíklegt að vökvi sem hellst hefur niður liti eða skemmi borðplötuna, en við mælum þó með því að þurrka upp allt slíkt sull eins fljótt og auðið - bara til öryggis. Einfalt sápuvatn ætti svo að duga á langflesta
bletti, en ef grípa þarf til sterkari aðgerða, t.d. gagnvart hörðnuðum matarleifum, mælum við með að skrapa leifarnar með plastskeið eða -hníf og þrífa borðplötuna í kjölfarið með mildum hreinsilegi og mjúkum klút.
Forðast skal að nota sterk hreinsiefni og grófa skrúbba eða bursta, því langvarandi notkun slíkra efna getur skemmt yfirborð platanna.
Að lokum eru nokkur atriði sem vert er að benda á:
Ef við lítum fyrst á vaskana, þá eru þrjár mismunandi leiðir til að festa þá í og við borðplötuna.
Líkt og nafnið gefur til kynna er vaskurinn límdur við undirhlið borðplötunnar. Sagað er gat í borðplötuna og innri brún gatsins pússuð vel. Vaskurinn er svo límdur undir borðið með sterku sílikoni. Til að tryggja vatnsheldni, þá er borðbrúnin látin ná 3 mm inn fyrir vaskinn. Þegar vaskar eru undirlímdir þarf sérstaklega að passa það að vaskurinn sé vel límdur, þar sem vaskur fullur af leirtaui getur hæglega orðið mjög þungur. Primastone plöturnar koma með sérstökum nælontöppum sem límdar eru inn í plöturnar svo auðveldara sé að festa vaskana betur á einfaldan hátt. Kostirnir við undirlímda vaska eru fallegt og smekklegt útlit og einfalt er að þrífa vaskinn. Á móti kemur getur reynst erfitt að skipta um vask og þurfa mjög nákvæm mál að vera til staðar. Eins þarf að festa vaskinn mjög vel svo hann losni ekki frá borðplötunni og valdi leka.
Þegar vaskar eru yfirfelldir er sagað gat í borðplötuna og vaskurinn settur ofan í. Þannig hangir hann á vaskbrúninni, sem einnig er límd við borðplötuna með sílíkoni til að tryggja vatnsheldni. Hér áður fyrr var einn helsti galli yfirfelldra vaska sá að sílíkonið var mjög sýnilegt en núorðið eru fáanlegir fjöldi fallegra vaska taka sig mun betur út með þessum hætti. Þessi aðferð er öllu einfaldari en undirlímingin og ekki er flókið að skipta um vask ef til þess kemur. Aftur á móti á sílíkonið til að eldast og losna og eins geta óhreinindi safnast undir vaskbrúnina sem erfitt getur reynst að þrífa.
Sléttfelldir vaskar eru sjaldséðari en hinar aðferðirnar, en þar eru vaskarnir festir á sama hátt og yfirfelldir, nema að fræst er aðeins úr borðplötunni þar sem vaskabrúnin liggur svo kantur vasksins falli fullkomlega að borðplötunni. Þetta er vissulega flóknara í framkvæmd og gerir það erfiðara að skipta um vask, en fyrir vikið eru mót borðplötu og vasks rennislétt og falleg. Að sama skapi kemur þessi aðferð í veg fyrir óhreinindasöfnun undir vaskbrúninni, svo þrif eru mun auðveldari.
Þegar horft er til helluborða og annarra slíkra eldhústækja liggur munurinn helst í því að líftími þeirra er gjarnan styttri en góðra vaska og því ekki útilokað að skipta þurfi um helluborð á einhverjum tímpaunkti.
Þegar helluborð eru yfirfelld er sagað gat í borðplötuna og helluborðið lagt ofan í svo það hangi á brúnunum, en þær eru svo einnig gjarnan festar við borðplötuna með sílíkoni. Þetta er vel þekkt og afar algeng aðferð og hefur hún þá kosti að auðvelt er að skipta um helluborð síðar meir. En sökum þess að brún helluborðsins hvílir ofan á borðplötunni geta óhreinindi hæglega safnast þar undir sem erfitt getur reynst að þrífa vel.
Hér eru helluborðin fest á sambærilegan hátt og þau yfirfelldu, nema að fræst er aðeins úr borðplötunni þar sem brún helluborðsins liggur svo yfirborð helluborðsins falli fullkomlega að borðplötunni. Með þessari afar smekklegu aðferð myndast ekkert pláss fyrir óhreinindi að safnast saman svo þrif eru leikur einn. Aftur á móti er afar erfitt að skipta um helluborð.
]]>Hvernig setur maður upp quartz borðplötur?
Að setja upp quartz borðplötur getur verið mikið verk en fyrir handlaginn einstakling er það eins og að drekka vatn! Ef allt gengur að óskum gætu plöturnar verið komnar upp á 3-4 tímum.
Hér fyrir neðan förum við yfir helstu skrefin og atriðin sem hafa þarf í huga.
Nauðsynleg tæki og tól:
Málband
Dúkahnífur
Áður en borðplötur eru settar upp:
Að stilla borðplöturnar af:
Að setja upp vaska, helluborð og blöndunartæki:
Að líma niður borðplöturnar:
Gangi þér vel!
]]>Quartz yfirborðsefni eru unnin úr náttúrulegum kvarssandi (ca 97%) sem blandað er við sérstakt límefni (ca 3%). Úr verða stórir flekar sem hægt er að vinna með, rétt eins og granít eða marmari.
Primastone borðplöturnar eru framleiddar undir ströngu gæðaeftirliti í vönduðum ítölskum vélum af fyrirtæki með 30 ára reynslu í steinsmíði. Við hjá Stöfnum bjóðum upp á mikið úrval fallegra lita og munstra, ásamt því að sérsníða allt quartz yfirborðsefni nákvæmlega að þínum þörfum.
]]>Þegar pantaðar eru quartz borðplötur frá Primastone skiptir nákvæmni og vandvirkni öllu máli. Því er afar mikilvægt að mælingar fyrir borðplötunum séu gerðar á viðunandi hátt.
Með því að fylgja þessum einföldu skrefum, ætti þó verkefnið að vera leikur einn!
En ef einhverjar spurningar vakna, ekki hika við að hafa samband við okkur á stafnar@stafnar.is og við munum hjálpa þér eftir bestu getu!
1. Teiknaðu útlínur platnanna.
Notaðu rúðustrikað blað - eða eyðublaðið okkar - til þess að teikna útlínur borðplatnanna. Notaðu eins margar blaðsíður og þú þarft.
2. Mældu plöturnar.
Merktu inn réttar stærðir allra hliða af nákvæmni. Mundu að gera ráð fyrir brúnum á plötunum. Ef veggir eru mjög skakkir eða horn ekki rétt þá mælum við með að velja einn vegg, þann skásta, sem útgangspunkt.
3. Merktu inn heimilistækin.
Ef borðplatan á að liggja utan um heimilistæki eins og helluborð eða vask, skaltu merkja inn hvar þau skulu staðsett. Best er að mæla fjarlægðina frá enda plötunnar inn að miðju heimilistækisins og svo fjarlægð þess frá frambrún plötunnar. Ekki gleyma að merkja inn stærð og staðsetningu blöndunartækja.
4. Merktu inn samskeyti.
Ef platan er L- eða U-laga þurfa að vera samskeyti. Merktu inn á teikninguna, nákvæmlega hvar á plötunni þau eiga að vera.
5. Merktu hliðarnar.
Að lokum þarftu að merkja inn hvaða brúnir borðplötunnar snúa að vegg og hverjar þeirra snúa fram.
Gangi þér vel!